Lýsing á verkefninu
Karlar til ábyrgðar (KTÁ) er eina sérhæfða meðferðaúrræðið fyrir karla sem beita ofbeldi á heimilum hér á landi. Um er að ræða einstaklingsmeðferð og hópmeðferð hjá sálfræðingum. Þótt karlar séu ekki einir um að beita ofbeldi er meðferðarúrræðið aðeins fyrir þá.
Saga Karla til ábyrgðar hófst með ráðstefnu sem Karlanefnd Jafnréttisráðs hélt árið 1994. Karlar til ábyrgðar var síðan tilraunaverkefni á árunum 1998-2002, en þá var því hætt sökum fjárhagserfiðleika. Á árunum 1998-2002 komu rúmlega sjötíu karlar í viðtöl hjá KTÁ. Um 30 karlar komu í 1-2 viðtöl, en 43 héldu áfram í meðferð. Af þeim voru 23 kvæntir, 13 í sambúð og sjö fráskildir.
Félagsmálaráðherra skrifaði undir samning um áframhald verkefnisins árið 2006 og er Ingólfur V. Gíslason, lektor við Háskóla Íslands, verkefnisstjóri. Andrés Ragnarsson og Einar Gylfi Jónsson eru sálfræðingar verkefnisins.
Karlar til ábyrgðar ráðstefna 2007
Í tengslum við Evrópuár jafnra tækifæra 2007, var haldinn ráðstefna um Karla til ábyrgðar, í samstarfi við félagsmálaráðuneytið og Jafnréttisstofu.
Dagskráin var tvískipt. Ráðstefnan byrjaði á námsstefnu þar sem Marius Råkil, norskur sálfræðingur og forsvarsmaður verkefnisins Vestfjord /Alternative to Violence, hélt erindi þar sem hann kynnti starfið í Noregi og reynsluna af því. Eftir hádegi var opin dagskrá. Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, hóf ráðstefnuna með ávarpi. Marius Råkil flutti annað erindi og í framhaldi kynntu íslenskir sérfræðingar sitt starf. Fyrst var það Dr. Berglind Guðmundsdóttir, sálfræðingur og greindi hún frá þeirri þjónustu sem þolendur heimilisofbeldis fá hjá Áfallamiðstöð slysa- og bráðadeildar LSH. Rannveig Þórisdóttir félagsfræðingur hjá Lögregluembætti höfuðborgarsvæðisins fjallaði um hvaða upplýsingar er að finna í gögnum lögreglunnar um heimilisofbeldi. Að lokum kynntu Andrés Ragnarsson og Einar Gylfi Jónsson sálfræðingar verkefnið Karlar til ábyrgðar. Þeir hafa stýrt því frá upphafi og gerðu þeir grein fyrir hvernig verkefnið hefur reynst og hvernig það hefur þróast.
Markmið ráðstefnunnar var að vekja athygli á alvarleika heimilisofbeldis og að ofbeldi karla gegn konum væri í senn mannréttindamál, jafnréttismál, heilsufarslegt vandamál, félagslegt vandamál, vandamál karla og pólitískt vandamál. Mikilvægt er að takast á við vandann frá öllum mögulegum sjónarhornum. Áhersla var lögð á að ná til fagfólks og einstaklinga sem koma að þessum málaflokki með einum eða öðrum hætti og að fá umfjöllun fjölmiðla. Megin markmiðið var þar af leiðandi að vekja athygli á meðferðaúrræðinu sem er í boði fyrir karla sem beita ofbeldi á heimilum. Einnig var tækifærið notað til þess að vekja athygli á nýju símanúmeri KTÁ.
Samstarfsaðilar
Félags- og tryggingamálaráðuneytið
Jafnréttisstofa
Kvennaathvarfið
Stýrihópur
Ingólfur V. Gíslason, verkefnisstjóri
Andrés Ragnarsson, sálfræðingur
Einar Gylfi Jónsson, sálfræðingar
Sigþrúður Gunnarsdóttir, frá Kvennaathvarfinu
Nánari upplýsingar fást hjá
Ingólfi V. Gíslasyni verkefnastjóra.