Smækka letur Stækka letur

OFBELDI Á HEIMILUM
Er til leið út
úr vandanum?
Meðferð fyrir karla
sem beita ofbeldi



Heimilisofbeldi er alvarlegt vandamál. Það fer þó leynt og því fylgir mikil skömm fyrir alla sem málið varðar.

Ofbeldið getur birst í ýmsum myndum:
  • líkamlegt ofbeldi
  • andlegt ofbeldi
  • kynferðislegt ofbeldi

Talið er að árlega verði 1100 konur fyrir ofbeldi af hendi maka eða fyrrverandi maka. Beiti maður eiginkonu eða sambýliskonu ofbeldi eru helmingslíkur á að hann geri það aftur. Könnun hefur leitt í ljós að fjórir af hverjum tíu Íslendingum þekkja persónulega einn eða fleiri sem orðið hafa fyrir ofbeldi af hálfu sambýlismanns eða eiginmanns.

Ef þú þekkir einhvern sem hefur beitt eða verið beittur ofbeldi á heimilinu getur þú gert honum greiða með því að benda á hvað hægt er að gera í málinu.

Nú býðst körlum sem vilja losna úr viðjum ofbeldisbeitingar aðstoð. Þótt karlar séu ekki einir um að beita ofbeldi er meðferðarúrræðið aðeins fyrir þá.

Um er að ræða einstaklingsmeðferð og hópmeðferð hjá sálfræðingum.
 

Upplýsingar og
viðtalsbeiðnir í síma:

555 3020

Fyllsta trúnaðar er gætt

Taktu ábyrgð
hringdu strax!

Einkaviðtal kostar
2000 krónur